Lognmolla í ólgusjó – Alþingiskosningarnar 2021 og kjósendur í áranna rás
Höfundar:
Upplýsingar
Þessi bók er fáanleg í rafrænni útgáfu þangað til 10. desember þegar bókin kemur úr prentun. Kaupendur rafrænu útgáfunnar geta sótt prentað eintak til Háskólaútgáfunnar eftir 10. desember gegn framvísun pöntunarstaðfestingar.
Bókin leiðir lesendur í ferðalag um íslensk stjórnmál. Hér leita höfundar svara við spurningum sem gjarnan eru ræddar í heitum pottum landsins: Hvað gæti ráðið mestu um hvað fólk kýs? Er eitthvað að marka fylgiskannanir? Hafnar unga fólkið hefðbundnum stjórnmálum? Er gjá milli frambjóðenda og kjósenda? Er neikvæðni í kosningabaráttu að aukast? Og hvernig hefur þetta allt verið að breytast á undanförnum árum og áratugum?
Árið 2021 lék heimsfaraldur heiminn grátt en í íslenskum stjórnmálum ríkti loks lognmolla eftir óróleika eftirhrunsáranna. Með einstökum gögnum Íslensku kosningarannsóknarinnar eru alþingiskosningarnar 2021 notaðar sem útgangspunktur til að skoða stjórnmálaþróun síðustu áratuga og hvers megi vænta í þróun lýðræðis á næstu árum.
Höfundar bókarinnar eru sérfræðingar í íslenskum stjórnmálum og eru mörgum lesendum kunnir fyrir skýringar sínar á stjórnmálum í fjölmiðlum um árabil.
Útkoma þessarar bókar er mikið fagnaðarefni fyrir öll okkar sem höfum áhuga á stjórnmálum. Hér birtast ítarlegar rannsóknir helstu fræðimanna okkar sem greina og skýra hvað gerðist í alþingiskosningunum 2021, skrifaðar á tungumáli sem allir geta skilið. En bókin er miklu meira en það, hér er skýr innsýn í viðhorf og væntingar kjósenda til lýðræðisins og stjórnmálaþátttöku undanfarna áratugi – og margt fleira. Bókin á ekki bara erindi til fræðimanna heldur og alls almennings. Hún er í raun ómissandi fyrir allt áhugafólk um stjórnmál.
- Bogi Ágústsson fréttamaður
- Fag: Stjórnmálafræði
- Blaðsíðufjöldi: 282
- Útgáfuár: 2024
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.