Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags 2020 og árbók 2018
Ritstjórar:
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
Almanak hins íslenska þjóðvinafélags byggir á Almanaki fyrir Ísland 2020 sem Háskóli Íslands gefur út. Þetta er 146. árgangur ritsins. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur og Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskólans hafa samið og reiknað almanakið en Jón Árni Friðjónsson ritstýrir árbók fyrir árið 2018.
Auk dagatals flytur almanakið margvíslegar upplýsingar, svo sem um sjávarföll og gang himintungla. Lýst er helstu fyribærum á himni sem frá Íslandi sjást. Í almanakinu eru stjörnukort, kort sem sýnir áttavitastefnur á Íslandi og kort sem sýnir tímabelti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborgum þeirra. Af nýju efni má nefna grein um sólgos og áhrif þeirra. Lýst er nýrri skilgreiningu á kílógramminu og fjallað um silfurský. Loks eru í almanakinu upplýsingar um helstu merkisdaga nokkur ár fram í tímann.
- Útgáfuár: 2019
- Blaðsíðufjöldi: 200
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.