Agnesarkver – Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse

Höfundur: Natalie M. Van Deusen

Ritstjórar: Margrét Eggertsdóttir, Annette Larsen

Verknúmer: U202620

ISBN: 978-9979-654-87-2

4.700 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Bókin Agnesarkver. Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse eftir Natalie M. Van Deusen, prófessor við Alberta-háskóla í Edmonton í Kanada, er komin út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Þar er fjallað um heilaga Agnesi sem talið er að hafi látið lífið aðeins 13 ára gömul í umfangsmiklum ofsóknum á hendur kristnum mönnum í Róm um 303–304. Hún mun hafa neitað að giftast heiðnum syni háttsetts embættismanns og haldið fast við trú sína og sannfæringu þrátt fyrir hótanir og misþyrmingar.

Saga Agnesar var þýdd á norrænu í kaþólskum sið og áhugi á henni dvínaði ekki á Íslandi við siðbreytinguna því að fjögur kvæði voru ort um Agnesi eftir siðaskipti. Þetta eru Vísur af heilagri jómfrú Agnesi; Rímur af Agnesi píslarvotti eftir sr. Eirík Hallsson (1614–1698); Agnesarvísa og Agnesarkvæði eftir Þorvald Magnússon (1670–1741). Af þessum kvæðum var það síðastnefnda vinsælast sem sjá má af því að kvæðið er varðveitt í fjölda handrita en það var líka sungið og á síðari hluta 20. aldar var enn til fólk sem kunni bæði lagið og textann eins og fram kemur á vefsíðunni ismus.is.

Í Agnesarkveri er greinargott yfirlit yfir heimildir um Agnesi og sögu hennar auk þess sem texti kvæðanna fjögurra er birtur ásamt inngangi og fræðilegri umfjöllun. Myndir sem tengjast sögu Agnesar prýða bókina og henni fylgir nafnaskrá. Ritstjórar bókarinnar eru Annette Lassen og Margrét Eggertsdóttir.

________________________

The book Agnesarkver. Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse, written by Natalie M. Van Deusen, professor at the University of Alberta in Edmonton in Canada, has been published by the Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies. It focuses on St. Agnes, who is believed to have died at the age of only 13 during the persecution of Christians in Rome around 303-304. She is said to have refused to marry the pagan son of a high-ranking official and held fast to her faith and convictions despite threats and abuse.

The saga of Agnes was translated into Old Norse during the Catholic period and interest in it did not wane in Iceland during the conversion to Lutheranism, because four poems were composed about Agnes after the Reformation. These are Vísur af heilagri jómfrú Agnesi; Rímur af Agnesi píslarvotti by Rev. Eiríkur Hallsson (1614–1698); Agnesarvísa; and Agnesarkvæði by Þorvaldur Magnússon (1670–1741). Of these poems, the latter was the most popular, as is evidenced by the fact that it is preserved in numerous manuscripts. However, it was also sung, and in the latter half of the 20th century there were still people who knew both the melody and the text, as appears on the website ismus.is.

In Agnesarkver there is a comprehensive overview of sources about Agnes as well as her saga, in addition to the text of the four poems which appear alongside an introduction and academic discussion. The book is adorned with images related to the saga of Agnes and is accompanied by an index. The book’s editors were Annette Lassen and Margrét Eggertsdóttir.

  • Útgáfuár: 2026
  • Blaðsíðufjöldi: 188
  • Fag: Miðaldafræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK